Sameining Taflfélags Bolungarvíkur og Skákdeildar Breiðabliks

Gummi og Halldór handsala sameininguna

Taflfélag Bolungarvíkur og Skákdeild Breiðabliks hafa ákveðið að sameinast undir nafninu “Skákdeild Breiðabliks og Bolungarvíkur”.

 

Taflfélag Bolungarvíkur á sér langa sögu og er m.a. fjórfaldur Íslandsmeistari skákfélaga (2009-2012).  Í dag er aðalstarfsemi félagsins þátttaka sveitar í 1.deild Íslandsmóts skákfélaga með Norðurlandameistarann Jóhann Hjartarson og fyrrverandi heimsmeistara sveina Jón L Árnason í broddi fylkingar.

 

Skákdeild Breiðabliks er þriggja ára og rekur öflugt barna og unglingastarf í Stúkunni við Kópavogsvöll. Skákdeildin stendur fyrir ýmsum mótum t.d. Gestamótinu og Elítukvöldunum í samvinnu við Taflfélagið Huginn og skólamót Kópavogs í samvinnu við skákkennara í Kópavogi. Breiðablik er með tvær sveitir í ÍS, önnur í þriðju deild og hin í þeirri fjórðu.

 

Tilgangur sameiningarinnar er að auka breidd, styrk, nýliðun og fjölbreytileika beggja aðila í nýju og spennandi samstarfi.

Sérkenni hvers aðila mun haldast og það góða starf sem bæði félögin standa fyrir. 

Nýtt félag mun senda sameiginlegt lið í Íslandsmót skákfélaga og stefnt er að því að fjölga sveitum þess í fjórar á næstu árum.

Það er sýn beggja aðila að hið nýja félag verði spennandi vettvangur fyrir gróskumikið starf þar sem reynsla og æska koma saman.

 


27.Bolvíkingaæfingin

Haldin hjá Magnúsi Pálma 19.september 2017

Klikkið á myndina til að sjá almennilega !

27.Bolvíkingaæfingin


Dramatískur sigur á unglingasveit TR

Unglingasveit TR og Bolvíkingar áttust við í 8 liða úrslitum hraðskákkeppni taflfélaga í kvöld. TR-ingar sýndu strax að þeir eru í mun betri æfingu og sneggri á klukkunni. Auk þess sem Bolvíkingar voru ekki alveg með nýjustu hraðskákreglur og hreinu og köstuðu frá sér vinningum með því að drepa kóng og vekja upp drottningu á rangan hátt. TR vann 4 af fyrstu 6 viðureignunum og höfðu öruggt forskot í hálfleik 21-15.

 

Bolvíkingar gerðu þá skiptingu þegar Halldór Grétar kom inn fyrir Gísla Gunnlaugs. Halldór lenti í vinnu útkalli snemma dags og kom beint úr því í seinni umferðina. Þessi skipting reyndist afdrifarík því strax í fyrstu umferð seinni hálfleiks unnu Bolvíkingar 5-1 sigur. Keppnin var því orðin spennandi en í næstu 4 umferðum urðu 3 jafntefli og 1 sigur með minnsta mun. Fyrir síðustu umferð var TR með eins vinnings forskot. Eftir mikla baráttu náðu Bolvíkingar að vinna loka umferðina með minnsta mun og keppnin endaði því 36-36.

 

Reglur keppninnar kveða á um að þá sé tefldur bráðabani og höfðu Bolvíkingar sigur 3,5-2,5. Þetta gat því ekki orðið mjórra á munum.

 

Jóhann Hjartarson dró bolvíska vagninn og Guðni Stefán var mjög öflugur. Halldór Grétar kom svo sterkur inn í seinni hlutann. Við hinir kroppuðum nokkra vinninga en ekkert meira en það. Höfum oft teflt mun betur en í kvöld en tökum ekkert af öflugum andstæðingum.

 

Hjá unglingunum dreifðust vinningarnir betur og ljóst er að TR á marga sterka og efnilega unglinga. Það sýndu þeir svo sannarlega í kvöld og eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðuna. Framtíðin er björt hjá hinu öfluga og virka Taflfélagi Reykjavíkur.

 

Guðmundur M. Daðason


26. Bolvíkingaæfingin

Haldin að Völusteinsstræti 13 14.júlí 2015

Klikkið á myndina til að sjá almennilega !

26. Bolvíkingaæfingin


Magnús Pálmi Vetrarmeistari Öðlinga 2014

vetrarmot2014_a

vetrarmot_sigurbegarar

Miðvikudagskvöldið 10.desember fór fram sjöunda og síðasta umferðin í Vetrarmóti öðlinga. Spennan var mikil enda Magnús Pálmi Örnólfsson og Þorvarður Fannar Ólafsson efstir og jafnir fyrir umferðina með fimm vinninga, heilum vinning á undan næstu mönnum.
Magnús tefldi við Vignir Bjarnason meðan Þorvarður mætti Kristjáni Halldórssyni. Báðar skákirnar voru jafnar lengi framan af og spennan magnaðist þegar á leið. Lengstu skákirnar voru á þremur efstu borðunum en á því þriðja vann að lokum Sverrir Örn Björnsson skák sína við John Ontiveros og tryggði sér þar með þriðja sætið á mótinu.
Magnús vann svo sína skák gegn Vigni eftir að hafa unnið riddara á skemmtilegan hátt. Allra augu beindust þá að skák Þorvarðar og Kristjáns en þar stóð Þorvarður betur en var orðinn tæpur á tíma. Hann var þó öryggið uppmálað í snúnu endatafli og sótti vinning þrátt fyrir öfluga og hetjulega vörn Kristjáns.
Magnús Pálmi og Þorvarður Fannar komu því jafnir í mark með sex vinning og þurfti því að grípa til stigaútreiknings til að knýja fram úrslit. Þar hafði Magnús betur en jafnara gat það vart orðið. Hann er því Vetrarmeistari öðlinga 2014 og er vel kominn að þeim sigri. Þetta er annar sigur hans á kappskákmóti í skákhöllinni á árinu, en Magnús sigraði örugglega áskorendaflokk Wow air mótins í vor.

Sjá nánar á: www.chess-results.com/tnr150003.aspx

 


Kóngarnir og Balotelli sigra á skákmóti !

HolsGenin

Á hverju ári heldur TR fjölskyldujólaskákmót. Keppt er í tveggja manna liðum sem skipuð eru annars vegar félagsmönnum (krökkum) í TR og hins vegar einhverjum öðrum úr fjölskyldunni. Má vera foreldri, systkini eða bara einhver ættingi.  Tvö lið voru efst og jöfn.

En úrslit urðu annars sem hér segir:
1.-2. Kóngarnir: Bárður Örn Birkisson og Björn Hólm Birkisson,
Balotelli:Benedikt Ernir Magnússon og Magnús Pálmi, 8 vinninga.
3.-5. Grýlugaffallinn: Mykhaylo Kravchuk og Vladimir, Jólaskákfélagið: Róbert Luu og Quan, Biskupaparið: Bjarki Arnaldarson og Arnaldur Loftsson, 7 vinninga.

Það þarf vart að taka fram að bæði lið eru rammbolvísk. Ekki bara það heldur eru allir fjórir keppendurnir náskyldir. Þeir Björn og Bárður eru synir Birkis Bárðasonar, Guðmundssonar frá Hóli. Bárður er svo bróðir Örnólfs Guðmundssonar. Það vill síðan svo skemmtilega til að Örnólfur er pabbi Magnúsar Pálma !

Nánar á: http://www.taflfelag.is/?c=frettir&id=1522&lid=&pid=&option=


Tvíburar ættaðir úr Bolungarvík að gera það gott í skákinni

 

Birkissynir

Tvíburarnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkissynir hafa verið að gera það gott í skákinni á þessu ári. Afi þeirra er Bárður Guðmundsson dýralæknir frá Hóli sem er föðurbróðir Magnúsar Pálma. Einnig er Freyja systir þeirra bræðra mjög efnileg og það eru líka tveir synir Magnúsar Pálma og ein dóttir hans. Það eru því greinilega römm skákgen sem koma frá Hóli !

Meðal árangra þeirra bræðra á þessu ári má nefna:

Opna tékkneska meistaramótið í júlí:
D-flokkur
1. Björn Hólm Birkisson hækkaði um 48 stig
4. Bárður Örn Birkisson hækkaði um 94 stig

Meistarmót Hugins í ágúst:
1.sæti unglingaflokkur: Björn Hólm Birkisson hækkaði um 63 stig
3.sæti unglingaflokkur: Bárður Örn Birkisson hækkaði um 29 stig

Haustmót TR í október:
C-flokkur
1. Bárður Örn Birkisson hækkaði um 71 stig
B-flokkur
2. Björn Hólm Birkisson hækkaði um 133 stig

Skákþing Garðabæjar í nóvember:
2. Bárður Örn Birkisson hækkaði um 117 stig
9. Björn Hólm Birkisson hækkaði um 70 stig

Afreksmörk Skáksambandsins fyrir 14 ára drengi eru 1950 stig og þeir bræður stefna hraðbyri þangað. Björn líklega með 1926 og Bárður með 1853.

Auk þess hafa bræðurnir unnið fjöldan allan af unglingamótum og skákæfingum í haust. Það verður gaman að fylgjast með þeim eftir áramótin. Framfarir þeirra eru ævintýri líkast.

 


Guðmundur Stefán Gíslason Íslandsmeistari skákmanna eldri en 50 ára

ISL_yfir50_2014

Þetta var fyrsta Íslandsmót í eldri aldursflokkum 50+ og 65+.  Það tókst vel að flestra mati og umgerð þess glæsileg. Teflt var í Hásölum Strandbergs,safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara hefur aðsetur, en framkvæmd mótsins var að mestu á hans vegum hans í góðu samstarfi við Skáksamband Íslands. Mótið fékk góða kynningu og var baksíða Morgunblaðsins daginn áður helguð því og á  sem slíkt vafalítið eftir að fara sögunnar spjöld.

Segja má að þetta mót brjóti í blað í skáksögulegu tilliti þegar tveir nýir flokkar eru opnaðir til keppni um Íslandsmeistaratitla sem hluti af rótgrónu Skákþingi Íslands. Það fer vissulega sérstaklega vel á því að efna til slíks móts fyrir eldri skákmenn, einkum í öldungaflokki 65+, sem er löngu tímabært. Þar er um að ræða hóp ástríðuskákmanna frá fornu fari sem helga skákinni tíma sinn og tómstundir í ellinni og fengu þarna loks tækifæri til að keppa sína á milli á alvörumóti.

 

Íslandsmeistari í flokki 65+ varð Björgvin Víglundsson KR og Guðmundur Stefán Gíslason TB í flokki 50+.

Sjá nánar á: http://chess-results.com/tnr152222.aspx?lan=1&art=4&wi=821 og http://skak.blog.is/blog/skak/entry/1518374/


Breytingar

Eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar fjórum sinnum í röð á árunum 2009-2012 breyttum við aðeins um takt. Við vorum búnir að sanna að við værum bestir og hungrið ekki jafnt mikið í Íslandsmeistaratitilinn og áður. Einnig er öllum ljóst að kostnaður við að verða Íslandsmeistarar er töluverður. Þröstur Þórhalls og Stefán Kristjáns áttu góð ár með okkur og áttu hlut í árangrinum. En þegar þeim buðust áhugaverð tækifæri vildum við ekki standa í vegi fyrir þeim. Við gerðum þó atlögu að titlinum og háðum skemmtilega baráttu. Í fyrra vorum við svo án erlendra stórmeistara og markmiðið breyttist í að ná bronsinu. 

 

Jón Viktor fékk svo í haust spennandi tilboð frá uppeldisfélagi sínu. Hann var samningsbundinn okkur en líkt og með Stefán og Þröst vildum við ekki standa í vegi fyrir Jóni. Hans bíða spennandi verkefni sem vonandi munu efla hann og hvetja til dáða. Við þökkum Jóni Viktori kærlega fyrir mjög ánægjulegt og skemmtilegt samstarf og óskum honum velfarnaðar.

 

Í ár stefnum við á bronsið fyrir liðið, að sem flestir liðsmenn eigi gott mót með passlegum áskorunum og vonandi hrynja inn nokkrir áfangar og stigahækkanir hjá okkar öflugu liðsmönnum !

 

Í bröltinu okkar tefldum þegar best lét fram fjórum sveitum, einni í hverri deild. Við náðum að draga marga góða skákkappa að borðinu, öfluga menn sem þó höfðu margir hverjir nánast hætt að tefla. Þessum sveitum hefur fækkað smá saman og í fyrra voru þær aðeins tvær. Ætlunin var að gera slíkt hið sama í ár en því miður er margt að setja strik í reikninginn. Vinna, veikindi, jarðaför, árshátíð ... lífið sjálft.

 

Forföllin eru af margvíslegum toga. Þrátt fyrir að vera búnir að fá nokkra aðila til að tefla með okkur á helginni, einstaklinga sem lítið hafa teflt undanfarin ár, vantar samt mannskap. Íslandsmót skákfélaga er skemmtileg og virðuleg keppni. Þó gleðin eigi að vera í fyrirrúmi er jafnframt ekkert gefið eftir á skákborðinu. Það er eitt af því sem gerir Íslandsmótið skemmtilegt. Í því samhengi er ekki boðlegt að tefla fram liði sem vitað er að ekki er hægt að fullmanna í öllum umferðum. Við neyðumst því til að draga B lið okkar úr keppni.

 

Ég hef oft sagt að 2. deildin sé sú skemmtilegasta á Íslandsmótinu. Liðin eru oftast mjög jöfn að getu og af 8 liðum falla tvö og tvö fara upp. Á hverju ári endurnýjast deildin um helming. Það er því með mikilli eftirsjá sem við drögum B liðið úr leik.

 

Vonandi veldur þetta ekki miklum óþægindum fyrir önnur félög og keppnina. Við óskum öllum velfarnaðar á helginni og vonandi munu allir skemmta sér vel.

 

F.h. Taflfélags Bolungarvíkur,

Guðmundur M. Daðason

 

 


Sigur eftir bráðabana

Það er óhætt að segja að boðið hafi verið upp á miklar sviptingar, háspennu, og dramatík þegar við Bolvíkingar mættum B liði Hugins í 16. liða úrslitum hraðskákkeppni talffélaga. Það voru mikil forföll í okkar liði en sveit Hugins var mun jafnari að getu. Fyrirfram mátti því búast við hörku viðureign.

 Það byrjaði hins vegar ekki gæfulega. Eftir fyrri hlutann var staðan 22-14 fyrir Huginn og við sem vorum á 3 neðstu borðunum vorum algerlega heillum horfnir. Ég tapaði öllum, Stefán fékk hálfan vinning og Guðni bara einn. Bragi, Jón Viktor og Dagur stóðu hins vegar fyrir sínu. 

 Seinni hlutinn byrjaði á jafntefli en síðan náðum við góðum 4,5-1,5 sigri og allt í einu virtumst við eiga möguleika. Sú von hvarf þó strax í næstu umferð með 1,5-4,5 tapi og aftur orðinn 8 vinninga munur en núna aðeins 3 umferðir eftir. Þá byrjaði dramatíkin. Við náðum fullkominni umferð og unnum 5-1. Vonin kviknaði og nú vissum við að allt væri hægt. 4-2 sigur kom svo í næstu umferð og munurinn allt í einu bara 2 vinningar. Í lokaumferðinni unnum við aftur 4-2 og náðum því að kreista út bráðabana. Síðustu þrjar umferðirnar fóru því samtals 13-5. Og þar af fékk Huginn einn vinning með því að Gunnar forseti barði Stefán niður á tíma með gjörsamlega koltapað tafl (þetta varð að fljóta með!).

 Í bráðabana er tefld ein umferð og nú var því allt eða ekkert. Við Stefán héldum áfram klaufaskapnum, Stefán lék illa af sér og tapaði frekar snemma og ég lék mig í mát með unna stöðu eftir fína skák. En átti lítinn tíma eftir. Bragi, Jón og Dagur fengu samtals 2,5 vinning og úrslitin réðust því í síðustu skákinni. Kristján Eðvars hafnaði víst jafnteflisboði fyrr í skákinni en þegar ég leit á stöðuna undir lokin stóð Guðni Stefán aðeins betur og með meiri tíma. Hann náði svo að vinna skiptamun í tímahrakinu og vann listavel úr stöðunni. Þegar mátið kom var ljóst að við höfðum sigrað með minnsta mögulega mun.

 Þetta var klárlega skemmtilegasta hraðskák viðureign sem ég hef tekið þátt í. Sviptingar miklar, ekkert gefið eftir, flott tilþrif og nóg af afleikjum. Ég og Stefán áttum að ná í fleiri vinninga og þó við höfum heilt yfir ekki teflt vel þá vorum við miklir klaufar í nokkrum skákanna. Það var í raun tvennt sem skóp sigurinn. Guðni Stefán hrökk í gang í seinni hlutanum og tók þá 5,5 vinning af 6. Bragi, Jón Viktor og Dagur höluðu svo inn vinningunum og fékk hver þeirra 9 vinninga. Fyrir utan bráðabanann sem þessir fjórir snillingar afgreiddu með stæl!

 Við þökkum Huginn kærlega fyrir frábæra viðureign og flotta umgjörð. Þetta kvöld sannaði að skák er svo sannarlega skemmtileg og allir fóru brosandi heim. GENS UNA SUMUS.

 

Guðmundur Daðason 

 

Viðureignin á Chess results: 

http://chess-results.com/tnr142734.aspx?lan=1&art=2&wi=821

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband