Taflfélag Bolungarvíkur - Íslandsmeistarar taflfélaga 2011

Bolvíkingar

Frétt af Skák.is 15.9.2011: Taflfélag Bolungarvíkur vann öruggan sigur á Taflfélaginu Helli í úrslitum keppninnar sem fram fór í kvöld í Hellisheimilinu.  Lokatölur urðu 42-30 fyrir gestunum.   Það var fljótlega ljóst hvert stefndi en Bolvíkingar náðu strax forystu í fyrstu umferð og unnu allar viðureignir fyrri hlutans!  Staðan í hálfleik 25,5-10,5.  Þeir slökuðu svo heldur á síðari í hlutanum og þar höfðu Hellismenn örlítið betur.   Þetta er í annað skiptið sem Bolvíkingar hampa titlinum en þeir unnu einnig keppnina 2009.  

Guðmundur Daðason tók í leikslok kampakátur við Vigfús og Guðmundur bikarnum úr höndum Vigfúsar formanns Hellis.  Stefán Kristjánsson var bestur Bolvíkinga en Sigurbjörn J. Björnsson var bestur Hellismanna.  Bæði félögin taka þátt í EM taflfélaga sem hefst 25. september nk. 

Myndir af meisturunum væntanlegar.

Árangur Bolvíkinga:

  • Stefán Kristjánsson 8,5 v. af 12
  • Þröstur Þórhallsson 8 v. af 12
  • Jóhann Hjartarson 7,5 v. af 12
  • Bragi Þorfinnsson 7 v. af 11
  • Jón Viktor Gunnarsson 6 v. af 12
  • Jón L. Árnason 5 v. af 10
  • Guðmundur Daðason 0 v. af 1
  • Halldór Grétar Einarsson 0 v. af 2

Árangur Hellisbúa:

  • Sigurbjörn Björnsson 8,5 v. af 12
  • Hjörvar Steinn Grétarsson 8 v. af 12
  • Björn Þorfinnsson 6,5 v. af 12
  • Davíð Ólafsson 4,5 v. af 12
  • Rúnar Berg 1 v. af 4
  • Róbert Lagerman 0,5 v. af 9
  • Omar Salama 1 v. af 9
  • Gunnar Björnsson 0 v. af 1
  • Vigfús 0 v. af 1 v.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband