2.3.2014 | 23:10
Ágætis árangur á Íslandsmóti skákfélaga
Seinni hluta Íslandsmóts skákfélaga lauk nú á helginni og líkt og í fyrri hlutanum mættum við ekki með neina erlenda stórmeistara til leiks. A liðið var í 5. sæti eftir fyrri hlutann og í harðri baráttu við TR um það fjórða. Við settum markið þó enn hærra og ákváðum að gera atlögu að verðlaunasæti. Til þess að það myndi takast var þó ljóst að allt þyrfti að ganga upp, sérstaklega þar sem Halldór Grétar var fjarri góðu gamni. Við byrjuðum á að vinna Akureyringa 6-2 í 6. umferð og þó maður vilji oft meira var þó varla hægt að fara fram á stærri sigur gegn svo sterku liði. Kvöldið eftir lögðum við b lið TR með fullu húsi, þrátt fyrir að hvorki Jói Hjartar né Jón L hafi teflt í þeirri umferð. 14 vinningar af 16 komnir í hús en framundan var langur laugardagur. Íslandsmeistarnir í Víkingaklúbbnum unnu okkur örugglega 5,2-2,5 og þar sem hvorki TV né GMH gáfu neitt eftir að ráði var ljóst fyrir síðustu umferð að þriðja sætið væri úr sögunni. Í lokaumferðinni gerðum við jafntefli við TR a og enduðum hálfum vinningi fyrir ofan þau í fjórða sæti.
Í 2. deild var B liðið nokkuð fyrir ofan fallsæti en við áttum þó það sterkar sveitir eftir að við bjuggum okkur undir harða fallbaráttu. Og það byrjaði ekki vel, 5-1 tap á móti Skákfélagi Íslands sem mættu mun sterkari til leiks nú í síðari hlutanum. Bæði GMH c og TV b minnkuðu forskot okkar og ljóst að hver punktur myndi skipta máli. Í næst síðustu umferð gerðum við jafntefli við bronslið Hauka og vorum við mjög sáttir við það, enda stigalægri á nánast öllum borðum. Í lokaumferðinni mættum við GMH c í hreinni úrslitaviðureign um fall. Okkur dugði reyndar að fá 2 vinninga af 6 en þar sem andstæðingarnir höfðu mætt mjög sterkir til leiks um morguninn sáum við fram á að þurfa virkilega að berjast fyrir að ná þessum tveim vinningum. Raunin varð allt önnur. Algerlega nýtt lið hjá GMH mætti til leiks og það miklu veikara en liðið um morguninn. Fyrsta borðs maðurinn er t.d. stigalægri en sá sem var á sjötta borði um morguninn. Miðað við hvað var í húfi og hversu möguleikar GMH hefðu átt að vera góðir, er þetta einkennilegasta uppstilling á liði sem ég hef séð (með fullri virðingu fyrir þeim sem tefldu). Við nýttum okkur þetta vel með 4-2 sigri og enduðum í 5. sæti.
Þegar uppi er staðið erum við því sáttir við árangurinn þennan veturinn. A liðið náði fjórða sætinu og það var einfaldlega aðeins of erfitt að ná verðlaunum, sem við vissum eiginlega fyrir fram. Það voru þó örlítil vonbrigði hversu fljótt okkar menn misstu möguleika á áfanga en það var einnig vitað fyrir fram að mikið þyrfti til, til að slíkt myndi ganga upp. B liðið stóð sig frábærlega og miðað við hin margfrægu ELO stig hefði sveitin líklega átt að falla. En menn börðust allir sem einn og tefldu vel heilt yfir sem skilaði frábæru 5. sæti. Maður helgarinnar var án vafa Guðmundur Hallórsson. Skák hans gegn Magnúsi Kristinssyni í TR b var flugeldasýning út í gegn og svo lagði hann Magnús Örn að velli með svörtu. Frábær taflmennska hjá Guðmundi.
Tilraunaverkefninu með 10 lið í fyrstu deild er nú lokið. Ein megin röksemdarfærslan fyrir fjölguninni var sú að gera mótið áfangahæft. Enginn áfangi náðist þó og það hljóta að teljast vonbrigði hversu fáir voru í raun nálægt því að ná áfanga. Mér skilst að fyrir síðustu umferð hafi aðeins Halldór Brynjar átt möguleika á áfanga en hann hefði þá þurft að leggja stórmeistarann Henrik Danielsen að velli. [leiðrétt 03.03: Fjölnismaðurinn Henrichs var einnig í áfangaséns á móti van Kampen] Þessi útkoma er þó ekki skrítin í ljósi þess hversu þétt er teflt. Gríðarlegur getumunur var á liðunum og deildin skiptist í nokkur hólf. Víkingaklúbburinn vann mótið nokkuð örugglega þegar uppi var staðið, fallliðin tvö voru áberandi slökust og nokkuð mörg lið sigldu í raun lygnan sjó, bara á misjöfnum stað í töflunni. Til að undirstrika getumun liðanna þá telst mér til að 17 viðureignir hafi unnist með 7 vinningum eða fleiri. Tæplega 40% viðureigna. Að tefla á fimmtudögum gerir það erfiðara fyrir utanbæjarmenn að tefla, getur kostað auka frídag o.s.fr. sem ekki er alltaf hrist fram úr erminni. Einnig virðist mönnun liðanna verða erfiðari því margir veigra sér við að tefla svona margir skákir á stuttum tíma. Sérstaklega er þetta erfitt fyrir okkur lítt virku skákmennina eins og ég fékk sjálfur að kynnast í fyrri hlutanum. Einkennileg uppstilling GMH á móti okkur í lokaumferðinni, eins og ég rakti hér að ofan, virðist t.d. að mestu skýrast af miklum forföllum. Flestir sem teflt höfðu með c liðinu um morguninn tefldu með b liðinu seinni partinn. Þetta fyrirkomulag virðist því geta haft þannig áhrif á aðrar deildir að hugsanlega sé hægt að tala um skaðleg áhrif.
Fljótt á litið sýnist mér gallarnir við fyrirkomulagið fleiri en kostirnir. Að mínu mati er þó nauðsynlegt að fram fari opin og málefnaleg umræða um hvernig til hafi tekist. Aðalfundur Skáksambandsins hefur svo síðasta orðið.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem komu að skipulagningunni og framkvæmdinni á mótinu. Það er ekki sjálfgefið að þetta gangi svona vel fyrir sig og að úrslit allra keppenda slegin inn í chess-results með þeim hraða sem við urðum vitni að. Takk fyrir okkur!
Guðmundur Magnús Daðason, formaður TB.
Árangur einstakra liðsmanna:
Jói H 1 af 3
Bragi 2,5 af 4
Jón L 1,5 af 2
Dagur 3 af 4
Jón Viktor 3 af 4
Gummi G 3 af 4
Gummi H 2,5 af 4
Magnús P 1,5 af 4
Guðni Stefán 2 af 4
Gummi D 2,5 af 3
Stefán 0,5 af 3
Unnsteinn 1,5 af 3
Sæbjörn 1,5 af 2
Magnús S 1 af 3
Gísli 1,5 af 3
Jónas 0 af 1
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.