25.9.2009 | 12:56
Róbert með áfanga
Útgáfufélagið Sögur er styrktaraðili mótsins.
Beinar útsendingar / Live Games
Pörun og úrslit / Pairing and results
Allar skákir (pgn) / All games (pgn)
Róbert Lagerman tryggði sér þriðja og síðasta áfangann að alþjóðlegum meistaratitli. Hann vann Jón Viktor nokkuð örugglega í lokaumferðinni. Róbert þarf nú bara að ná 2400 stigum til að verða útnefndur alþjóðlegur meistari.
Taflfélag Bolungarvíkur óskar Róberti til hamingju með glæsilegan árangur!
Mótið verður gert betur upp í næstu viku en í kvöld, föstudaginn 25. sept, hefst titilvörn Íslandsmeistaranna í Taflfélagi Bolungarvíkur. Keppt er í Íslandsmóti skákfélaga alla helgina.
Bestu kveðjur, Gummi
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.