23.11.2014 | 21:00
Guðmundur Stefán Gíslason Íslandsmeistari skákmanna eldri en 50 ára
Þetta var fyrsta Íslandsmót í eldri aldursflokkum 50+ og 65+. Það tókst vel að flestra mati og umgerð þess glæsileg. Teflt var í Hásölum Strandbergs,safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju, þar sem RIDDARINN, skákklúbbur eldri borgara hefur aðsetur, en framkvæmd mótsins var að mestu á hans vegum hans í góðu samstarfi við Skáksamband Íslands. Mótið fékk góða kynningu og var baksíða Morgunblaðsins daginn áður helguð því og á sem slíkt vafalítið eftir að fara sögunnar spjöld.
Segja má að þetta mót brjóti í blað í skáksögulegu tilliti þegar tveir nýir flokkar eru opnaðir til keppni um Íslandsmeistaratitla sem hluti af rótgrónu Skákþingi Íslands. Það fer vissulega sérstaklega vel á því að efna til slíks móts fyrir eldri skákmenn, einkum í öldungaflokki 65+, sem er löngu tímabært. Þar er um að ræða hóp ástríðuskákmanna frá fornu fari sem helga skákinni tíma sinn og tómstundir í ellinni og fengu þarna loks tækifæri til að keppa sína á milli á alvörumóti.
Íslandsmeistari í flokki 65+ varð Björgvin Víglundsson KR og Guðmundur Stefán Gíslason TB í flokki 50+.
Sjá nánar á: http://chess-results.com/tnr152222.aspx?lan=1&art=4&wi=821 og http://skak.blog.is/blog/skak/entry/1518374/
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.